Sjáðu Norðurljósin dansa
Buggy og Norðurljósin
Brottför kl. 19:00
Fjögurra tíma ferð - Verð frá kr. 79.900
Buggy, Norðurljósin og hverabakað brauð.
Við förum í stórkostlega Norðurljósaferð þar sem við förum bak við fjöllin með háu ljósin á þar til við finnum góðan stað til að sjá Norðurljósin. Slökkvum öll ljós og njótum þess að horfa á Norðurljósin dansa á ævintýrlegan máta fyrir ofan okkur.
Við komum við og finnum heitan hver þar sem við fáum nýbakað hverabrauð, sem er einstakt að bragða í óspilltri náttúrunni.
Buggy bílarnir okkar er 2ja og 4ja sæta. 4x4 og sjálfskiptir. Allir bílarnir uppfylla ítrustu öryggiskröfur eins og bílbelti og veltigrind.
Tveir til fjórir aðilar geta verið í sama bílnum. Oftast nær eru tveir í hverjum bíl.
Einnig er hægt að panta stakan bíl og er þá bara bílstjórinn í þeim bíl.
Innifalið:
- 4ja tíma Buggy ferð.
- Einangraður galli
- Hjálmur
- Andlitshlíf
- Við útvegum allan búnað fyrir örugga og þægilega ferð
Gilt ökuskírteini er skilyrði til að fá að keyra Buggy bíl.
Verð miðast við að komið sé á staðinn í Skíðaskálann í Hveradölum.