Um okkur
Buggy Iceland er staðsett í Skíðaskálanum Hveradölum. Aðeins 25 mínútna akstur frá Reykjavík.
Höfuðstöðvar okkar og upphafspunktur ferðanna er í Skíðaskálanum Hveradölum. Skíðaskálinn er er fallegt hús sem sýnilegt er frá þjóðveginum.
Þar förum við yfir öryggisatriðin, klæðum okkur í hlífðarfötin og setjum upp hjálmana áður en lagt er af stað í Buggy ferðina.
Skíðaskálinn er opinn frá 9-18 og þar er veitingastaður svo að í lok ferða er hægt að fá sér hressingu.
Landslagið í kringum Hveradali er frábært fyrir Buggy ferðir. Óhefluð náttúra og slóðir allt í kring sem við ferðumst um, miskrefjandi eftir ferðum og hópum.
Til viðbótar við ferðirnar okkar bjóðum við upp á sérsniðnar ferðir samkvæmt óskum viðskiptavina.